Tosca í beinni á lau. 10. okt./14. okt. í Kringlubíói


 

Næstkomandi laugardag verður fyrsta beina útsending Sambíóanna í Kringlubíói frá Metropolitan-óperunni í New York, en bíóið hóf sýningar af þessu tagi síðasta vetur í samráði við Íslensku óperuna sem slógu strax í gegn hjá íslenskum óperuunnendum. „Frumsýningin” í ár er ný uppfærsla á Toscu eftir Puccini, laugardaginn 10. október kl. 17, og er þá um beina útsendingu að ræða. Þar sem fáir miðar eru eftir þann dag hefur verið efnt til aukasýningar miðvikudaginn 14. október kl. 18.30. Miðaverð á sýninguna er 2.200 kr. og má kaupa miða á www.midi.is eða við innganginn.