Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson héldu tvenna tónleika í Salnum um helgina fyrir sprengfullu húsi. Þeir verða endurteknir á laugardag 29. janúar kl. 16. Á efnisskrá eru sönglög eftir Beethoven, Jónas Ingimundarson og John Speight og Mozart aríur. Efnisskrána má sjá á salurinn.is , en einungis eru örfáir miðar eftir óseldir. Miðaverð 3.500 kr. og 2.900 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn.
Miðasala á www.salurinn.is og í síma 570 0400 kl. 14-18 virka daga!