Á Sinfóníutónleikum í Háskólabíói laugardaginn 23. okt. kl. 17 verður úrdráttur úr Töfraflautunni. Fram koma ungir einsöngvarar sem stunda framhaldsnám erlendis eða eru nýsnúin heim frá námi. Það eru þau Herdís Anna Jónasdóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Jón Svavar Jósefsson, Tinna Árnadóttir og Hrund Ósk Árnadóttir. Sögumaður er Halldóra Geirharðsdóttir, stjórnandi Bernharður Wilkinson. Miðaverð kr. 1,700.-