Þóra Passauer altsöngkona heldur tónleika í Neskirkju við Hagatorg ásamt Gerrit Schuil 22. ágúst kl. 17.
Á dagskrá tónleikanna verða íslensk sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, Árna Thorsteinsson og Sigfús Einarsson, ljóð eftir Brahms, og aríur úr Carmen eftir G. Bizet, Spaðadrottningunni eftir Pjotr Tsjækovskí og La Gioconda eftir A. Ponchielli.