Sveinn Dúa og Jón Svavar í Hofi lau. 18. sept. kl. 17

 Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, Jón Svavar Jósefsson barítón og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari munu leiða saman hesta sína á tónleikum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 18. september klukkan 17. Þar mun þríeykið flytja íslensk sönglög og dúetta í bland við nokkur gullkorn óperubókmenntanna
Miðaverð 1500 kr
Forsala í Hofi og á www.menningarhus.is


Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór og Akureyringur með meiru hefur þrátt fyrir ungan aldur komið fram sem einsöngvari víða um Ísland og erlendis. Hér heima ber hæst að nefna fjölmarga tónleika með Karlakór Reykjavíkur. En á síðustu plötu kórsins syngur Sveinn titillag plötunnar "Áfram veginn". Hann söng hlutverk Ferrandos í "Cosi van tutte" eftir Mozart í Óperustúdíói Ísl. óperunnar 2008.
Erlendis hefur Sveinn einnig getið sér gott orð. Hann leggur nú lokahönd á nám við Tónlistarháskóla Vínarborgar ásamt því að sinna einsöngsverkefnum víða um heim. þar ber hæst að nefna tónleika í mars síðastliðnum í Musikverein í Vínarborg, allnokkrar messur og tónleikar víða um Austurríki, tónleikaferð til Suður Kóreu með Ensemble des Wiener Staatsoper chores. Í ágúst síðastliðin söng hann hlutverk Itulbos í óperunni "Il pirata" eftir V. Bellini í Basel á vegum Opera Riehen.

Jón Svavar Jósefsson barítón
Jón Svavar Jósefsson útskrifaðist frá óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst Wien í júní 2007. Hann hefur sótt fjölda námskeiða í söng og sviðslistum á Íslandi, Belgíu og Austurríki. Jón hefur haldið marga einsöngstónleika og komið víða fram, á Íslandi sem og annars staðar.
Vorið 2008 söng Jón Svavar hlutverk Gulglielmos úr óperunni Cosí fan tutte eftir W. A. Mozart með Óperustúdíói Íslensku Óperunnar. Veturinn 2010 söng Jón einsöng með Sinfoníuhljómsveit Íslands sem hann mun aftur syngja með í haust.

Helga Bryndís Magnúsdóttir hefur haldið fjölda einleikstónleika, kammertónleika, leikið einleik með hljómsveitum, með einsöngvurum, kammersveitum og kórum. Hún hefur leikið inná geisladiska og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Hún býr á Dalvík og starfar einnig sem organisti og kórstjóri