Sköpunin í Háskólabíói 2. apríl kl. 19.30

Sköpunin eftir Haydn verður flutt á páskatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói fimmtudaginn 2. apríl kl. 19.30.   Einsöngvarar eru breski tenórinn James Gilchrist sem kemur til landsins beint úr tónleikaferð þar sem hann syngur einmitt Sköpunina, þýski barítóninn Stephan Loges og sópransöngkonan Rebecca Bottone. Einnig taka tveir kórar þátt í flutningunm; Kór Áskirkju og Hljómeyki.

Hinn heimsþekkti Paul McCreesh stjórnar hljómsveitinni. Hann hefur um árabil verið í fremstu röð þeirra sem sérhæfa sig í tónlist endurreisnar, barokks og klassíkur og hljóðritun hans á þessu verki hlaut hin virtu Gramophone-verðlaun á síðasta ári.

Flutningur á verkinu tekur um eina og hálfa klukkustund og ekki verður gert hlé á tónleikunum.   Kaupa miða