Tvær stuttar óperur, Síminn e. Menotti og Biðin e. Mikael Tariverdjev verða fluttar á Akureyri, Reykjavík og Skagafirði sem hér segir:
Leikfélag Akureyrar
29. ágúst kl. 15 – Frumsýning
30. ágúst kl. 15
Iðnó, Reykjavík
4. sept. kl. 20
5. sept. kl. 20
Miðgarður, Skagafirði
19. sept. kl. 20:30
Söngvarar: Alexandra Chernyshova, Michael Jón Clarke.
Píanóleikari: Daníel Þorsteinsson
Leikstjóri: Aðalsteinn Bergdal
Sími: 8986364
Netfang: dreamvoices@dreamvoices.isLýsing
Síminn var frumsýndur 1947 á Broadway, New York.
Óperan hefst heima hjá Lucy, rússneskri konu. Lucy finnst ekkert skemmtilegra en að tala í símann og er háð því að tala í hann. Hún á kærasta, Ben sem er ríkur flugmaður. Óperan er ástarþríhyrningur Lucy, Ben og símans. Í óperunni er Ben alltaf að reyna að ná sambandi við Lucy en gengur illa þar sem hún er í símanum, hann vill spyrja hana mikilvægrar spurningar.
Þetta er létt og skemmtileg ópera sem er full af gríni, hlátri og ást. Óperan er á ensku.
Biðin er eins hlutverks ópera í einum þætti. Hún var frumsýnd 1986.
Þessi ópera er um einmana konu, söngkonu sem bíður eftir draumaprinsinum með mikilli örvæntingu. Öll óperan gerist að hausti á rómantísku rússnesku torgi. Konan á stefnumót við karlmann, sem er píanóleikari að atvinnu. Þessi kona hefur orðið fyrir mörgum áföllum í einkalífinu. Hún hefur átt farsælan feril sem söngkona, peninga og vini en vantar í lífið það sem mestu skiptir – ástina. Verður þetta stefnumót upphafið að ástarsögu eða öðru áfalli í hennar lífi?
Tónlistin í óperunni er blönduð af rómantík, nútíma- og kvikmyndatónlist sem gerir þessa óperu einstaka. Óperan er á rússnesku.
Alexandra Chernyshova er fædd í Kiev, Úkraínu árið 1979. Hún lauk tónlistarskóla, píanónámi, árið 1993. Þaðan fór hún í söngnám í tónlistarháskólanum Glier í Kíev, því námi lauk árið 1998. 1997 söng Alexandra sitt fyrsta aðalhlutverk í óperunni í Kiev, Ivasik Telesik(strák) þá 18 ára gömul, í operuni Zerbakov. Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Í apríl, árið 2002, var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni “Nýtt nafn í Úkraínu”. Síðar það ár tók hún þátt í alþjóðlegri keppni óperusöngvara í Grikklandi, Rhodes og hafnaði þar í fjórða sæti, yngst keppenda. Frá árinu 1999 til 2003 stundaði Alexandra söngnám í söng akademíunni Nezdanova, Odessu / Úkraínu, kennari hennar þar og um leið yfirkennari söngdeildar var prófessor Galina Polivanova. Á þessum árum hefur hún sungið m.a. í óperustúdíóinu í Odessa með sinfóníuhljómsveit. Frá janúar 2003 var Alexandra fastráðin sem einsöngvari í óperunni í Kiev. Samhliða því starfið hún sem einsöngvari með frægum landskarlakór í Úkraínu, Boyan.
Í lok október 2003 fluttist Alexandra til Íslands. Alexandra hefur haldið rúmlega þrjátíu einsöngstónleika hér á Íslandi, sungið með Karlakórunum Heimi og Hreim, gaf út sinn fyrsta geisladisk árið 2006. Síðar það ár stofnaði hún Óperu Skagafjarðar sem setti síðan upp óperuna La Traviata 2007/2008, Alexandra söng hlutverk Violettu. Ópera Skagafjarðar frumsýndi Rigoletto 21. maí í Skagafirði og er líklegt að fleiri sýningar verði í haust. Ópera Skagafjarðar hefur gefið út tvo geisladiska, annars vegar tónleika útgáfu með völdum lögum úr La Traviata og hins vegar perlur úr Rigoletto. Alexandra er listarænn stjórnandi Óperu Skagafjarðar og kórstjóri óperukórsins. Alexandra stofnaði Söngskóla Alexöndru í byrjun árs 2008, skólinn er starfræktur í Skagafirði og eru 35 nemendur í söng og/eða píanónámi. Söngskóli Alexöndru er í samvinnuverkefni með tónlistarskólum Austur og Vestur Húnavatnssýslu um verkefnið „Draumaraddir norðursins“, Alexandra er listrænn stjórnandi verkefnisins og kórstjóri Stúlknakórs Norðurlands vestra. Alexandra gaf út í vor geisladiskinn „Draumur“, romantískt lög eftir Sergei Rachmaninov er hann annar geisladiskur Alexöndru. Jónas Ingimundarson er undirleikari á diskinum. Árni Bergmann þýddi ljóðin á disknum yfir á íslensku. Alexandra fékk úthlutað listamannalaunum í sex mánuði á þessu ári.
Michael Jón Clarke hefur starfað á Akureyri um 35 ára skeið sem fiðlu-og söngkennari, kór- og hljómsveitarstjóri. Hann stundaði fiðlu- og söngnám til graduate prófs við Trinity tónlistarháskólann í London og framhaldsnám við háskólann í Suður-Illinois í Bandaríkjunum. Árið 1990 stundaði hann söngnám við Royal Northern College of Music hjá Ryland Davies og lauk Postgraduate prófi úr óperudeild skólans 1991. Michael var fyrsti kennari á Íslandi til að innleiða Suzuki kennslu sem hann lærði hjá John Kendall í Southern Illinois University í Bandaríkjunum. Michael hefur verið fenginn til að kenna á fjöldamörgum námskeiðum í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Michael söng aðalhlutverk í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmína Burana, hefur sungið fjöldamörg önnur óperuhlutverk. Hann frumflutti verk Ólivers Kentish “Mitt fólk” með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói undir stjórn Osmo Vänska. Michael söng baritón einsöngshlutverk í sálumessu Durufflé með Mótettukór Hallgrímskirkju sem var flutt víðsvegar í Evrópu og gefið svo út á geisladisk af Thorofon. Michael hefur verið einsöngvari hjá fjöldamörgum kórum, haldið einsöngstónleika víða hér heima og erlendis, sungið inn á marga diska. Hann hefur stjórnað fjölda kóra. Hann var listamaður Akureyrar 1997.
Daníel Þorsteinsson píanóleikari stundaði sitt tónlistarnám í Neskaupstað, við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Tónlistarskólann í Reykjavík. Framhaldsprófi lauk hann frá Sweelinck tónlistarháskólanum í Amsterdam árið 1993.Daníel hefur komið fram víða um heim í einleik og samleik, auk þess sem hann hefur samið og útsett tónlist fyrir leikhús, söngvara og kóra, og leikið inná fjölda hljómdiska tónlist af ýmsu tagi.
Með CAPUT hópnum hefur Daníel komið víðsvegar fram m.a. á Norðurlöndunum, Ítalíu, í Kanada, Bandaríkjunum og Japan. Daníel hefur í þrígang hlotið starfslaun frá Menntamálaráðuneytinu og árið 2000 var hann útnefndur bæjarlistamaður á Akureyri. Hann býr nú í Eyjafjarðarsveit, kennir við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar, starfar sem organisti og kórstjóri við Laugalandsprestakall í Eyjafirði og er stjórnandi Kvennakórs Akureyrar.
Aðalsteinn Bergdal hóf leikferlil sinn í Sjallanum árið 1967 sem Steini í “Sláturhúsið hraðar hendur” undir leikstjórn læriföður síns, Ágústar Kvaran. Árið eftir í revíu á sama stað og svo hjá Leikfélagi Akureyrar í “Rjúkandi ráð” 1969. Hann var í hópi fyrstu fastráðnu leikaranna hjá félaginu 1973. Aðalsteinn hefur verið fastráðinn við atvinnuleikhúsin þrjú, leikfélag Akureyrar, Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið. Þá lék hann einnig hjá Alþýðuleikhúsinu og Garðaleikhúsinu. Á þessum 40 ára leikferli er leikverk á sviði komin á annað hundraðið og persónur ríflega 150 og við sögu hafa komið 54 leikstjórar. Meðan hann dvaldi sunnan heiða vann hann m.a. í 12 ár við barnatíma sjónvarpsins. Þá ljáði hann rödd sína inn á nokkur hundruð teiknimyndir, tók þátt í sjónvarpsmyndum og nokkrum bíómyndum. Hann stundaði söngnám með leiklistinni í rúm 7 ár og hefur m.a. haldið söngkonserta á erlendri grundu. Svo hefur Aðalsteinn verið trúðurinn Skralli í rúm 33 ár.