Nú er Vox Domini 2018 lokið. Við eigum mikið af hæfileikafólki í hópi söngvara og það var virkilega gaman að sjá alla sem tóku þátt um helgina. Sigurvegarar í svona keppnum eru auðvitað allir sem taka þátt, það verður aldrei of oft sagt.
En úrslit keppninnar í ár voru svona:
Opinn flokkur
1. sæti og jafnframt Rödd ársins – Íris Björk Gunnarsdóttir
2. sæti og áhorfendaverðlaun – Sólveig Sigurðardóttir
3. sæti Dagur Þorgrímsson
Framhaldsflokkur
1. sæti – Ásta Marý Stefánsdóttir
2. sæti – Sigurður Vignir Jóhannsson
3. sæti – Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir
Miðflokkur
1. sæti – Ólafur Freyr Birkisson
2. sæti – Katrín Eir Óðinsdóttir
3. sæti – Vera Sif Brynjudóttir
Við viljum þakka kærlega öllum sem með einum eða öðrum hætti gerðu þessa keppni að því sem hún varð:
–Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir afnot af aðstöðu þeirra.
–Salurinn í Kópavogi gaf miða á Tíbrártónleika
–Sinfoníuhljómsveit Íslands gaf miða á tónleika að eigin vali.
–Íslenska Óperan gaf miða á uppfærslu óperunnar,
–Nótnaútgáfan Ísalög gaf nótnabækur með einsöngslögum eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Pál Ísólfsson, Karl O. Runólfsson og nýja útgáfu af íslenskum sönglögum með íslenskum og enskum söngtexta.
–Sönghátíðin í Hafnarborg gefur þátttöku í masterklass hjá Kristni Sigmundssyni, þátttöku á tónleikum í lok masterklass, upptaka á tónleikum og miða á alla viðburði hátíðarinnar.
–Félag íslenskra söngkennara gefur söngtíma hjá Janet Williams.
–Miðar á Óperudrauginn
–Fyrstu verðlaun í opnum flokki fá tónleika sér að kostnaðarlausu í Kaldalóni í Hörpu auk þess að hljóta titilinn rödd ársins 2018.