Fjórir heimilisleysingjar gramsa í ruslatunnum í óhrjálegu porti. Hverjum hefði dottið í hug að þar leyndust skínandi perlur óperubókmenntanna?
Tónlist úr óperum á borð við Brúðkaup Fígarós, Gianni Schicchi, La traviata, Cosi fan tutte, Rakarann í Sevilla – og að sjálfsögðu Perlukafarana, öðlast nýtt líf í stórskemmtilegu sýningu úr smiðju Ágústu Skúladóttur (Ballið á Bessastöðum, Ástardrykkurinn, Klaufar og kóngsdætur) og félaga, sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni föstudaginn 8. apríl næstkomandi. Fylgist með nokkrum af færustu söngvurum Íslands flytja ódauðleg meistaraverk í sprellifandi og sprenghlægilegum búningi!
Hér er jafnframt um að ræða síðasta verkefni Íslensku óperunnar í húsnæði sínu til þrjátíu ára. Næsta frumsýning Íslensku óperunnar verður því í Hörpu, og eru því síðustu forvöð að sjá óperusýningu í hinu gamla og sjarmerandi húsnæði við Ingólfsstræti.
Söngvarar: Ágúst Ólafsson, Gissur Páll Gissurarson, Hulda Björk Garðarsdóttir og Valgerður Guðnadóttir.
Píanóleikari: Antonía Hevesi – Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir – Leikmynd: Guðrún Öyahals – Búningar: Katrín Þorvaldsdóttir – Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Allar nánari upplýsingar um sýninguna um sýninguna á www.opera.is.
Myndband frá æfingum