Michael í Seltjarnarneskirkju sunn. 21. mars kl. 17

 Michael J. Clarke verður einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 21. mars kl. 17. Þar syngur hann „Ich habe genug“, kantötu nr. 82 e. Bach og Non più andrai og Hai già vinta la causa úr Brúðkaupi Fígarós. Einnig verður Ítalski forleikurinn í C-dúr e. Schubert og Sinfónía nr. 38 (Prag) e. Mozart á efnisskránni. Stjórnandi: Oliver Kentish

Aðgangseyrir er 2000 kr, afsláttarverð 1000 kr fyrir nemendur og eldri borgara.