María Jóns í Norræna húsinu sunn. 21. feb. kl. 15.15

 Sunnudaginn  21. febrúar  kl 15.15, halda María Jónsdóttir sópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu.  Á efnisskrá er úrval íslenskra og erlendra sönglaga og aría, en yfirskrift tónleikanna, Svarta Rosor, er fengin af samnefndu lagi Sibeliusar .Miðaverð: 1500 kr. – 750 kr. fyrir eldri borgara og nemendur.