Magnús Hallur Jónsson heldur til náms í Hanns Eisler tónlistarskólanum í Berlín innan skamms. Af því tilefni býður hann til tónleika, sem hann kallar „Barnið burt“, fimmtudaginn 17. sept. kl. 20 í Sigurjónssafni, „Laugarnesi, við hliðina á ruslahaugi Hrafns Gunnlaugssonar“, eins og Magnús orðar það. Píanóleikari Kristinn Örn Kristinsson. Hildigunnur Einarsdóttir og Andri Björn Róbertsson munu einnig koma fram. Aðgangur ÓKEYPIS.