Lilja x2 og Kristín í Fella- og Hóla mið. 5. maí kl. 20

Miðvikudaginn 5. maí næstkomandi verða haldnir söngtónleikar í Fella- og Hólakirkju. Fram koma sópransöngkonurnar og nöfnurnar Lilja Guðmundsdóttirog Lilja Eggertsdóttir og messósópransöngkonan Kristín Sigurðardóttir. Með þeim leika Ari Vilhjálmsson fiðluleikari, Gréta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari, Anna Hugadóttir víóluleikari og Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari auk Gerrits Schuil píanóleikara. Á dagskránni eru meðal annars dúettar eftir F. Mendelssohn og Strauss, terzett eftir Strauss og einsöngs- og samsöngsverk eftir V. Bellini, G. Verdi, H. Berlioz, E. Korngold og E. Floyd.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aðgangseyrir er 1500 kr. Hlökkum til að sjá ykkur,

Liljurnar og Kristín.