Fimmtudaginn 16. júní kl. 20.30 verður spennandi viðburður í íslenskri tónlistarsögu, en þá leiða saman hesta sína tveir stórjöfrar, þeir Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar Ólafsson í fyrsta skipti. Tónleikarnir eru jafnframt þeir fyrstu sem Kristinn syngur á í Hörpu. Á efnisskránni er Vetrarferðin eftir Franz Schubert, sem er af mörgum talinn áhrifamesti ljóðaflokkur allra tíma.
Miðar á tónleikana gilda jafnframt á opna æfingu listamannanna 14. júní kl. 20, þar sem þeir munu leiða (ekki þó hönd í hönd) áheyrendur í gegnum flokkinn í tali og tónum og skoða ólíkar túlkunarleiðir.