Burtfararprófstónleikar Kristínar Sigurðardóttur frá Söngskóla Sigurðar Demetz verða haldnir í Fella- og Hólakirkju mánudaginn 6. apríl kl 20. Með henni leika Gerrit Schuil á píanó, Anna Hugadóttir á víólu og Hjörleifur Valsson á fiðlu. Á efnisskrá eru verk eftir Cesti, Bach, Gluck, Ponchielli, Schubert, Brahms, Rangström, Stenhammar og Jón Ásgeirsson.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill!