Kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar halda tónleika fimmtudaginn 3. febrúar í Borgarneskirkju kl. 20:30.
Dagskráin verður fjölbreytt, m.a. verður leikið sexhent á píanó, blandað samspil, fiðluleikur og söngur. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kynnir á tónleikunum: Páll Brynjarsson