Jóhannesarpassían í Hallgrímsk. og Hofi 1./2./3. apríl

Þóra Einarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Benedikt Kristjánsson, Andri Björn Róbertsson og Ágúst Ólafsson verða einsöngvarar í Jóhannesarpassíunni  eftir Johann Sebastian Bach sem verður flutt í Hallgrímskirkju og í menningarhúsinu Hofi 1., 2. og 3. apríl nk. Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Miðaverð 4.900/3.900. Miðasala í Hallgrímskirkju (s.5101000) og á midi.is