Janet Williams leiðbeinir söngnemendurm á Tónlistarhátíðinni „Við Djúpið“ á Ísafirði 22. – 27. júní 2010. Aðrir kennarar verða m.a. Andrew Quartermain, píanó og Sif Tulinius, fiðla. Auk þeirra koma fram Blásarakvintett Nordic Chamber Soloists, Carmina o.fl. Hátíðin hefur á umliðnum árum markað sér þá sérstöðu að vera uppfinningasöm og bjóða upp á skemmtilegar nýjungar í sambland við hefðbundna dagskrá.