Þriðjudagskvöldið 29. desember heldur söngtríóið Hvönn sína fyrstu tónleika ásamt Jóni Elíssyni píanista á Kaffi Rósenberg kl. 21. Á BOÐSTÓLUM verða falleg jólalög í bland við annað léttmeti. Hvönn skipa þær stöllur Edda Björk Jónsdóttir, Halla Marinósdóttir og Vala Sigríður Guðmundsd. Yates. Leiðir þeirra lágu saman í Söngskólanum í Reykjavík og hófu þær samstarf í haust.
Góðir gestir munu stíga á stokk en þeir eru meðal annars: Svavar Knútur káti trúbadorinn, Pétur Oddbergur Heimisson söngvari, Arthúr Ólafsson gítarleikari Miðaverð kr. 500. Enginn posi á staðnum!