Helena G. Bjarnadóttir verður einsöngvari á tónleikum kammerkórsins Hymnodiu í Akureyrarkirkju sunnudaginn 3. maí kl. 16 ásamt kammersveit undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Á efnisskránni eru Missa Sapientiae og Credo eftir Antonio Lotti, Concerto Grosso, op. 3, nr. 8 eftir Vivaldi og Singet dem Herrn ein neues Lied eftir J. S. Bach.