Hanna Þóra í Garðakaffi 28. okt. kl. 12

 Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona heldur hádegistónleika miðvikudaginn 28. október kl. 12 í Garðakaffi á Safnasvæðinu á Akranesi.
Undirleikari er Sveinn Arnar og fiðluleikur verður í höndum Kristínar Sigurjónsdóttur.

Á Garðakaffi verður hægt að fá súpu og meðlæti á vægu verði. Einnig heimabakað bakkelsi og drykki.

Þessi viðburður er liður í Vökudögum á Akranesi sem verða frá 28. Október til 1. Nóvember 2009.