Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti í Akraneskirkju, hefur sett saman tónleikaröð sem hann kallar Mánudagsmenningu. Þar mun listafólk frá Akranesi koma fram.
Á fyrstu tónleikunum, mánudagskvöldið 28. september kl. 20 munu þau Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona flytja nokkrar þekktar perlur úr söngarfi kirkjutónlistar, íslenskar sem erlendar í Akraneskirkju.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er aðgangseyrir kr. 1000.