Hanna Dóra Sturludóttir messósópransöngkona og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari koma fram á fyrstu háskólatónleikum haustsins í Norræna húsinu miðvikudaginn 7. október kl. 12.30. Á efnisskránni verða lög eftir Mendelssohn, Brahms, Clöru Schumann, Robert Schumann, Atla Heimi Sveinsson, Tryggva M. Baldvinsson, Gunnar Reyni Sveinsson og fleiri. Tónleikarnir standa í um hálftíma. Aðgangseyrir kr. 1000, ókeypis fyrir nemendur HÍ.