Hanna Dóra í Hafnarborg mið. 27. jan. kl. 20

 Hanna Dóra Sturludóttir kemur fram á Myrkum músíkdögum með Chalumeaux tríóinu í Hafnarborg miðvikudaginn 27. janúar kl. 20. Tónleikarnir verða helgaðir minningu Óskars Ingólfssonar, klarínettuleikara. Á efnisskránni eru verk eftir Þorstein Hauksson, Ólaf Axelsson, Joep Straesser, Atla Heimi Sveinsson og 6 íhugulir söngvar eftir Pál P. Pálsson.