Hanna Dóra Sturludóttir syngur á fyrstu hádegistónleikum Hafnarborgar fimmtudaginn 1. okt. kl. 12.
Að venju standa tónleikarnir yfir í um hálfa klukkustund og öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.
Á efnisskránni eru aríur samdar fyrir karlpersónur en sungnar af messósópran.
Hanna Dóra hefur sungið við óperuhús í Þýskalandi og víðar í á annan áratug og átt velgengni að fagna. Antonía Hevesi leikur með á píanó.