Hallveig og Hrönn í Hafnarborg þri. 26. jan. kl. 12

 Þriðjudaginn 26. janúar kl. 12 verða hádegistónleikar í Hafnarborg á Myrkum músíkdögum, þar sem Hallveig Rúnarsdóttir og Hrönn Þráinsdóttir flytja lög íslenskra kvenna við ljóð kvenna. Þær fengu styrk frá Hlaðvarpanum – menningarsjóði kvenna til að fá tvö tónskáld til að semja fyrir sig ljóðaflokka og urðu Hildigunnur Rúnarsdóttir og Anna Þorvaldsdóttir fyrir valinu. Auk þessara tveggja frumfluttu ljóðaflokka verða verk eftir Jórunni Viðar og Elínu Gunnlaugsdóttur á efnisskránni.