Guðrún Ingimars sópran og Jónína Erna Arnardóttir píanó halda tónleika í Borgarneskirkju laugardaginn 13. júní kl. 16. Flutt verða íslensk og norræn sönglög. Guðrún er búsett í Þýskalandi og hefur komið fram víða um Evrópu við ýmis verkefni en 2008 kom út geisladiskur með söng hennar hjá Íslenskri tónverkamiðstöð. Jónína og Guðrún eru báðar Borgfirðingar og hafa starfað mikið saman þrátt fyrir að búa í sitt hvoru landinu.