Oft var þörf en nú er nauðsyn. Í ljósi umræðunnar á undanförnum vikum er ekki vanþörf á að hittast, gera sér glaðan dag og skiptast á skoðunum. Auk þess hafa verið margir áhugaverðir tónleikar undanfarið og maður kemst nú ekki á þá alla, gaman væri að fá fréttir af þeim. Því skulum við hittast sem allra flest föstudaginn 18. febrúar á Hilton hóteli kl 17.00 – 19.00.
Fyrir hönd stjórnarinnar,
Hlín Pétursdóttir Behrens