Árið byrjar með sannkölluðum hátíðarbrag á Vínartónleikum þar sem hljóma sígrænar perlur eftir meistara óperettunnar. Nú eru það Finnur Bjarnason og Þóra Einarsdóttir sem stiga á svið með hljómsveitinni á þessum vinsælustu tónleikum sveitarinnar. Ferna tónleika þarf til að allir komist að sem vilja og er ráð að tryggja sér miða í tíma. Tónleikarnir 6., 7. og 8. jan. hefjast kl. 19.30, en 9. jan. kl. 17 og verða allir í Háskólabíói. Miðaverð kr. 4.100.-