Eyvi á Nýárstónleikum Tríósins í Hafnarborg sunn. 24. jan. kl. 20

 Á nýárstónleikum Tríós Reykjavíkur með Eyjólfi Eyjólfssyni verða gömul og ný íslensk lög sungin og leikin, tónlist frá Vínarborg og nærsveitum. Sígaunasveiflur eftir Kálman og Sarasate, yndisleg Vínartónlist eftir Kreisler, Mozart og Schubert og ótalmargt fleira.
Fjör, glens og gaman.
Hægt er að panta miða á opnunartíma Hafnarborgar í síma 585 5790.