Í föstutónleikaröðinni: Leyndardómur trúarinnar í Grindavíkurkirkju, miðvikudagskvöldið 3. mars, verða einsöngvarar Elfa Dröfn Stefánsdóttir messósópran og Ásdís Arnalds sópran. Einnig koma fram sönghópurinn Kordía undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari.Flutt verða verk eftir m.a. Gabriel Fauré og J.S. Bach.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aðgangseyrir er 1000 kr.