20. apríl 2006, Sumardagurinn fyrsti. Listahátíð Seltjarnarneskirkju.
Í dag kl. 17 verða Biblíuljóð sungin og lesin í Seltjarnarneskirkju. Margrét Bóasdóttir söngkona og eiginmaður hennar sr. Kristján Valur Ingólfsson lektor munu standa fyrir söngdagskrá þar sem Margrét flytur nokkur af biblíuljóðum tékkneska tónskáldsins Antonin Dvoraks við undirleik Hrefnu Eggertsdóttur.