Dóra Steinunn í Gerðubergi þri. 26. maí kl. 20

 Dóra Steinunn Ármannsdóttir heldur tónleika í Gerðubergi þriðjudaginn 26. maí kl. 20. Á dagskránni eru óperuaríur allt frá ísköldum Orlofskí til blóðheitrar Carmenar. Antonía Hevesí leikur með.

Dóra Steinunn tekur þátt í Belvedere óperukeppninni í Vínarborg í júní og fer einnig í áheyrnarprufu fyrir Neue Stimmen keppnina í Berlín. Tónleikarnir nú eru því styrktartónleika til þess að hita upp fyrir keppnirnar.

Miðaverð er 1500 kr. Fráls framlög í ferðasjóð eru vel þegin.