Diddú og Bjarni Thor í Töfraflautu SSD, Lindakirkju 8. maí kl. 20

 Tveir kennarar í Söngskóla Sigurðar Demetz, Bjarni Thor Kristinsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, munu koma fram í hlutverkum Sarastrós og Næturdrottningarinnar ásamt nemendum skólans í Töfraflautunni, föstudaginn 8. maí kl. 20 í Lindakirkju. Miðasala við innganginn. Miðapantanir í síma 552-0600 og 893-7914. Miðaverð: 2.700 kr.