Þann 5. september kl. 17 verða fyrstu tónleikar vetrarins í Salnum í Kópavogi. Þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson flytja glæsilega söngtónleika með lögum eftir Brahms, Mahler, Donizetti, Gershwin og Berlin. Það kemur eflaust mörgum á óvart, en þetta er í fyrsta sinn sem þessir ástsælu listamenn þjóðarinnar halda saman tónleika.