Í dag verður Dalton Baldwin með masterklass í Salnum kl. 10.30-18. Þar munu koma fram langt komnir nemendur og ungir söngvarar sem eru að byrja ferilinn. Það er eins og hver annar draumur að þetta skuli vera staðreynd. Hinn heimsþekkti, píanóleikari, tónlistarjöfur og snillingur gefur vinnu sína í minningu Halldórs Hansen.
Allir ættu að taka upp símann, kansellera því sem þeir eru að gera í dag og drífa sig. ÞAÐ ER ÓKEYPIS!