Þann 22. maí n.k. verða liðin 200 ár frá fæðingu Richards Wagners. Í tilefni þess munu Anna Jónsdóttir sópran og Richard Simm píanóleikari halda tónleika á Kjarvalsstöðum, sunnudaginn 26. maí, klukkan 17.00.
Á dagskránni er fjölbreytt söngtónlist eftir Wagner, frönsk ljóð, Wesendonck lieder og aríur. Tónleikarnir hefjast á frönsku ljóðunum, sem eru frá fyrri hluta ferils Wagners, og í kjölfarið koma aríur úr Lohengrin og Tannhäuser, samdar á fimmta áratug 19. aldar. Eftir hlé flytja Anna og Richard Wesendonck-ljóðin, samin við ljóð Mathilde Wesendonck, eiginkonu velgjörðamanns Wagnes, á árunum1877 og 1878. Wesendonck-ljóðin voru að nokkru leyti eins konar formáli eða forstúdía að óperunni Tristan og Ísold og því er við hæfi að ljúka tónleikunum á aríu úr þeirri óperu, Mild und leise.
Wagner var maður leikhúss, hugsjón hans var að sameina listgreinar í eitt listform í gegnum leikhúsið (Gesamtkunstwerk). Verk hans eru oft innblásin af norrænni goðafræði og goðsögnum.. Það er því vel við hæfi að flytja tónlist hans á listasafni, ekki síst á safni Kjarvals innan um stórbrotin verk dulúðar og hulduheima, sem vekja upp samtal milli heima.
Almennt miðaverð: 2800
Fyrir námsmenn og lífeyrisþega: 2300