Bjarni Thor í Salnum fimmt. 25. júní kl. 20

 Fimmtudaginn 25. júní kl. 20 halda Bjarni Thor Kristinsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari tónleika í Salnum þar sem þau feta sig niður tónstigann í leit djúpum bassanótum og merkingu þeirra í aríum, ljóðum og sönglögum sem stefna niður á við og rista djúpt.

Miðaverð er 2500 kr. og 1500 kr. fyrir námsmenn og öryrkja.
Sími í miðasölu er 5 700 400. NETSALA www.salurinn.is
Miðasala Salarins er opin virka daga kl. 10 – 16 og klst. fyrir tónleika.