Það er ekki í hverjum mánuði sem bæði er boðið upp á Svanasöng og Vetrarferð af tveimur af okkar bestu söngvurum fyrr og síðar. Hvaða smáborg úti í heimi býður upp á svoleiðis? Bjarni Thor Kristinsson flytur Vetrarferðina ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur í Salnum laugardaginn 19. febrúar kl. 17. Kaupa miða.
Author: admin
Óp-hópurinn í Salnum mið. 9. feb. kl. 18
Óp-hópurinn heldur tónleika í Salnum miðvikudagskvöldið 9. febrúar kl. 18. Fluttar verða aríur, dúettar og tríó úr heimi óperunnar. Nokkrar óperur Mozarts urðu fyrir valinu auk Carmenar eftir Bizet, La Favorita eftir Donizetti og Norma eftir Bellini svo eitthvað sé nefnt.
Allir meðlimir hópsins koma fram en hópinn skipa þau Hörn, Bragi, Rósalind, Erla Björg, Jóhanna, Magnús, Bylgja Dís og Antonía (talið frá vinstri til hægri á myndinni).
Tónleikarnir taka um það bil klukkustund í flutningi og mun Antonía kynna atriðin inn á milli til að fræða áheyrendur um það sem fram fer.
Miðaverði er stillt í hóf og kostar einungis 1500 krónur inn.
Ágúst endurflytur Svanasöng í ÍÓ fös. 27. feb. kl. 20
Hin hrífandi sýning Svanasöngur, sem sýnd var í Íslensku óperunni við einróma lof gesta og gagnrýnenda, verður endurflutt sunnudaginn 27. febrúar næstkomandi kl. 20. Hér er um nýstárlega útfærslu á hinu þekkta tónverki Schuberts að ræða, Schwanengesang, þar sem Lára Stefánsdóttir dansar við tónlistarflutning þeirra Ágústs Ólafssonar baritónsöngvara og Gerrits Schuil píanóleikara, en sviðsetningu annaðist bandaríski danshöfundurinn Kenneth Oberly.
Gagnrýnendur fóru fögrum orðum um sýninguna í ýmsum miðlum:
* * * * – R.Ö.P., Mbl.
„Skemmtileg, frumleg og athyglisverð sýning“ – J.S., Fbl.
„Virkilega ánægjuleg kvöldstund“ – H.J., Víðsjá
Óvenjuleg uppfærsla á Svanasöng Schuberts var flutt í Íslensku óperunni föstudagskvöldið 4. febrúar nk. kl. 20. Það eru þau Lára Stefánsdóttir dansari, Ágúst Ólafsson baritónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari sem flytja ljóðaflokkinn í nýstárlegri útfærslu bandaríska danshöfundarins Kennet Oberly. Verkefnið er samvinnuverkefni Íslensku óperunnar og Pars Pro Toto.
Miðaverð er 2.500 kr. – smelltu hér til að kaupa miða!
Continue reading „Ágúst endurflytur Svanasöng í ÍÓ fös. 27. feb. kl. 20“