Jólahádegistónleikar Önnu Jónsdóttur sópran og Sophie Schoonjans hörpuleikara verða haldnir föstudaginn 17. desember klukkan 12:15, að Skúlatúni 2, 6 hæð.
Anna og Sophie hafa starfað saman undafarinn áratug, en á þeim tíma hafa þær á hverju ári sett saman aðventu- og jóladagskrá til flutnings. Á tónleikunum flytja þær uppáhaldsjólalögin sín í fjölbreyttri dagskrá sem hefur að geyma aðventu- og jólalög og aðra andlega tónlist.
Dagskráin er hæfilega löng til að hlýða á í hádeginu og hentar vel til að slaka á í amstri dagsins.
Aðgangseyrir er 1000 kr.